SKELJAR


EFTIR MAGNÚS THORLACIUS

Skeljar er ljúfsárt leikrit eftir Magnús Thorlacius sem fjallar um par sem kynnist hvort öðru upp á nýtt við að skipuleggja brúðkaupið sitt.

Hvers vegna giftum við okkur í dag? Er hjónaband í raun bara praktískt ,,næsta skref” fyrir tvær turtildúfur sem vilja styrkja stöðu sína gagnvart sköttum og bótum? Að bjóða bjúrókrasíunni upp í hjónarúmið? Svo ekki sé minnst á brúðkaupsdaginn sjálfan; á hvaða hefðum byggjum við fallegasta dag lífs okkar? Hvaðan koma þessar hefðir og hvers vegna höldum við í þær? Því þegar öllu er á botninn hvolft er það að gifta sig í raun ekkert annað en að setja upp fallegt leikrit á stærsta degi lífs síns. En er það að vera í hjónabandi leikrit líka?

Leikritið Skeljar fjallar um þær hugmyndir sem við höfum um hjónabönd, trúlofanir og giftingar. Annarri hæðinni í Ásmundarsal verður umbreytt í brúðkaupssal þar sem persónurnar keppast við að undirbúa stóra daginn sem og breytingarnar sem hann mun hafa í för með sér á líf þeirra. Ekkert má út af bregða, ef dagurinn á að vera fullkominn!



Höfundur og leikstjóri:
Magnús Thorlacius

Leikarar:
Vilberg Pálsson og Hólmfríður Hafliðadóttir

Tónlist og hljóðmynd:
Katrín Helga Ólafsdóttir

Aðstoðarleikstjóri:
Ástrós Hind Rúnarsdóttir

Ljósmyndir:
Annalísa Hermannsdóttir

Grafísk hönnun:
Guðrún Sara Örnólfsdóttir



SÝNINGAR

1. feb kl. 20.00

2. feb kl.20.00

14. feb kl.20.00

16. feb kl.20.00

18. feb kl.20.00

22. feb kl.20.00


MIÐASALA Á TIX.IS