FLÉTTA
Vöruhönnuðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir eru tvíeykið á bakvið hönnunarstúdíóið Fléttu. Í dag flytjast þær búferlum til þess að glæða Gryfjuna í Ásmundarsal lífi. Þar munu þær vinna að nýjasta verkefni sínu, Trophy, þar sem verðlaunagripir eru settir í öndvegi, þeir afbyggðir og séðir í nýju samhengi.
Verðlaunagripir eru mikilvægur hluti af stórum stundum í lífi fólks, afrekum og minningum. Þeir segja sögu af óteljandi vinnustundum og þrotlausum æfingum. Þeir lifa fyrir eitt augnablik, þegar þeim er lyft í sigurvímu.
Birta og Hrefna stofnuðu Fléttu fyrir rúmu ári en hafa frá 2014 unnið saman að fjölbreyttum verkefnum. Þær munu vinna að verkefninu Trophy í Gryfjunni fram að HönnunarMars (28. -31. mars) þegar afrakstur vinnunnar verður sýndur.
Product designers Birta Rós Brynjólfsdóttir and Hrefna Sigurðardóttir are the duo behind the design studio Flétta, which is moving to Gryfjan in Ásmundarsalur to work on their latest project, Trophy, where trophies are placed in the forefront, deconstructed and seen from a new perspective.
Trophies are a part of big moments in people's lives, achievements and memories. They tell a story of countless hours and strenuous exercises.
They live for the moment, when they are lifted up in triumph.
Birta and Hrefna founded Flétta over a year ago, but have worked together since 2014 on various projects. They will be working in Ásmundarsalur until DesignMarch, (28. - 31. Mars) when the results of their work will be exhibited.